Xpress on GPS Shell - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með. Eftirfarandi
leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Alla aukahluti skal geyma þar sem börn ná ekki til.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem
tæra rafrásirnar.

Ekki má nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegu
hlutirnir í því geta skemmst.

Ekki má geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja,
skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki má geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur
raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Tækinu má ekki henda, ekki má banka í það eða hrista það.

Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
tækið.

Ekki má mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir
að þeir vinni rétt.

Ef tækið vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila til
lagfæringar.